|
30.06.2007 21:00:30 / Bergrún
Ég er með nýtt blogg, www.youbless.blogspot.com það er mjög gaman
að lesa, það er alltaf mjög gaman að lesa! lestur fyrir lífstíð,
menntum börnin, berjum þau með bókum!
»
16.03.2007 00:08:14 / Bergrún
það kemur víst aldrei neinn hérna lengur... en hey ég er að fara að
túra með Björk Guðmundsdóttur... vííí... ég einhvern veginn varð að
koma því að hérna... ok pís át wu tang clan...
»
23.06.2006 00:01:12 / Bergrún
Hæhæ ég er að fara til Interlochen eftir 17
tíma og kem aftur eftir 1 og 1/2 mánuð nánar tiltekið 7. ágúst.
Þar á ég að spila á hornið mitt langt fram á kvöld alla daga og
fæ ekki að halda símanum mínum eða senda email. Og ekkert
sjónvarp heldur. 
Og iPodinn minn var að bila. Það kviknar ekki á
honum! Ég veit ekki alveg hvort ég haldi út að vera iPods laus
svona lengi. En allavega bara að láta fólk vita hvar ég er. Það er
bannað að halda partý þangað til ég kem heim.

»
08.06.2006 02:10:14 / Bergrún
Núna er ég hér komin og er að spila tölvuleiki í
góðum fíling og allt að gerast vááá brjálað ég var að drekkja
sims kellingunni minni í sundlauginni og allt að gerast.....
stay tuned... annars missiði af heillandi ágangi í lífi mínu,
alltaf einhvað spennandi að gerast vúú

Sim kall að drukkna
»
01.05.2006 16:39:27 / Bergrún
ég er að flýta mér í tíma
»
16.04.2006 02:39:48 / Bergrún
»
10.04.2006 20:24:03 / Bergrún
Hæhæ hér er ný færsla.
Ég er í páskafríi að borða nammi og sofa og vinna. Dr. 10210 er
ýkt skemmtilegur þáttur, með fullt af skondnum atvikum sem skemmta
og fræða, halda uppi samræðum sem vit er í og gaman að brjóta
heilann um þegar ég hef ekkert að gera það er leiðinlegt og
svartnættið er að ná tökum á manni og lífið virðist merkingarlaust
og svart, þegar mann dreymir að vinkonur manns
Þórdís! mig dreymdi áðan til að gera langa sögu stutta að e-h
kennari opnaði kústaskáp, þar sast þú við borð og varst að læra, þá
sagði hún "working hard or hardly working!" og brosti svona, en svo
skiptist um sjónarhorn, og þú varst með fullt af járnstöngum úr
andlitinu og í skrifborðið, og engin augu. En bókin var samt fyrir
framan þig. Og kennarinn leit út eins og gellan sem kynnti
Australia's next top model.
Mér þykir samt alveg vænt um þig sko, vil ekkert að þú
deyjir.
»
07.03.2006 00:51:06 / Bergrún
Regnbogar blóm póníhestar hlæjandi börn kettlingar eplatré
fuglar ég
- Óhamingjan er líkt og gruggugt vatn, en eins og í vatninu mun
gruggið setjast til botns og lífið verða bjart á ný!
- Minnstu þess að ekkert í hinum ytri heimi fær raskað hamingju
þíns innri manns.
- Besta lyfið í lífsins raunum er tryggur vinur og
hamingjustund.
Mamma gaf mér Hamingjuspor í afmælisgjöf. Ég las hana og hún
breytti lífi mínu.
Svo leiddumst við og valhoppuðum glaðar til móts við
sólarupprásina.
»
22.02.2006 15:23:34 / Bergrún
Nú er ég stór. Ég hef staðfestingu á því vegna þess að ég er að
passa litlu krakkana akkurat núna. Þeir líta upp til mín og dást að
mér vegna valds míns. Ég er 19 ára en þeir 15 ára. Viska mín hefur
vaxið 10x frá því að ég var 15 ára. Ég er barmafull af visku og
yfirvaldi. Ég er svo gáfuð.
Ég var í útvarpsviðtali áðan. Mér var hent út. Ég hefndi mín á
þáttastjórnendunum, þeir eiga surprise í Þemablaðinu þegar það
kemur út. Ég er nebbla svo vel tengd manneskja.
Nú eru þeir að gjóta augunum á mig vegna hljóðsins í
lyklaborðinu.
»
15.02.2006 11:20:24 / Bergrún
Ég á afmæli í dag
 
»
30.01.2006 00:17:31 / Bergrún

 
Ég þarf að fara að komast að því hvar bróðir minn
finnur allt bullið sem hann finnur. Í alvöru, bróðir minn er
snillingur. Ég reyni eins og ég get, en ég gæti aldrei verið eins
sniðug og hann. Hann er líka strákur, og strákar eru betri en
stelpur. Það er vísindalega sannað þó að margir kyngi því ekki
þegjandi.
Eins og ég til dæmis. Strákar eru ekkert betri en stelpur. Ef
einhver einsog t.d. Akasha myndi drepa alla karlmenn í heiminum
(nema nokkra valda auðvitað til manneldis) þá væri allt ofbeldi
nánast úr sögunni og öll kúgun þarmeð og hungursneyð. En þá gæti
maður auðvitað spurt sig hvort að konur myndu bara ekki þróast
út í ofbeldi þegar þær reyndu að ná valdi yfir hvor annarri. En þá
myndi Akasha bara drepa ofbeldisfullu konurnar líka og þar með
myndi bara friðsælt fólk æxlast og halda góðu genunum inni á meðan
þau sem stuðla að ofbeldi myndu hverfa smám saman úr
mannkyninu.
En þá værum við í slæmum málum ef geimverur myndu koma og ráðast á
okkur því þá gætum við ekki varið okkur vegna þess að við værum of
friðsælt þenkjandi og gætum líkamlega ekki skilið afhverju einhver
myndi vilja ráðast á okkur. Þá myndi Mannkynið deyja út.
En Akasha var búin að hugsa planið sitt í yfir 5000 ár þannig að
það hlýtur að hafa verið skothelt.
Skilaboð dagsins eru því: Að drepa alla karlana gæti ekki verið
gott.
»
24.01.2006 01:15:27 / Bergrún
Jæja. Ég sé fram á að eiga eftir að hafa kveikt á tölvunni minni
oft næstu 3 mánuðina (er í 3 próflausum áföngum). Þarf að hafa
eitthvað að stafni.
Ég er að fara til Mexíkó. Á svona ofur túristastað. Ég hef
aldrei farið á þannig áður. Þá er ég ekki að telja með þegar ég
labbaði á glerhurðina. Ein dýrlegasta stund lífs míns. Núna fæ ég
líka að sofa út. Skólinn byrjar ekki fyrr en klukkan 10, nema á
miðvikudögum. Þá byrjar hann klukkan 12. Eins og Jean-Paul Sartre
sagði; hinir góðu deyja ungir. Þetta hefur oft verið sagt um mig.
Ég er alltaf bara; þúst, hættu að tala við mig! Ég veit!

Þetta erum ég og Embla á Halloween. Ég var drukknuð og Embla var
mansonisti. Hvortveggja krefst dramatískrar
eitthvað-slæmt-er-í-aðsigi pósu. Systir hennar Emblu er alltaf að
gera svona pósur. Sjá www.blog.central.is/steiktir-laukar. Sýnir
manni hvers maður fer á mis við að vera ekki svona kúl dags
daglega. Ég vildi að ég væri þannig.
»
13.01.2006 23:56:57 / Bergrún
samvistum okkar er hérmeð slitið.
»
09.12.2005 19:00:44 / Bergrún
- ...skaust í
gegnum hugsanir mínar þegar ég þurfti að hlusta á Heitar
Lummur
- ...var líka það sem ég hugsaði
þegar systir mín dó - en hún skaut sig einmitt í hausinn með
haglabyssu
tveir af lægstu punktunum í lífi
mínu en þeir eru svo margir fyrir

"Smoke me a
kipper. I'll be back for breakfast."
Haha nei djók
Heitar Lummur voru ekkert að
spila Heheh ég er svo
fyndin
»
30.11.2005 23:25:09 / Bergrún
Ég fór út í búð keypti mér
snúð og hitt'ann Tralla Trúð
Ég fór út í búð og fékk
gæsahúð af að hitta þennan trúð

svo skilaði ég skilað samræmda prófinu auðu í morgun.
er að þykjast hafa verið að mótmæla ýkt mikið
en ég var bara þreytt og löt.
úff ég er alltof kúl fyrir svona próf.
»
Síður: 1 2
|